Vogur 30 ára
Þann 28. Desember 2013 verða liðin 30 ár frá vígslu sjúkrahússins Vogs. Allir sem til þekkja vita að opnun Vogs á þeim tíma markaði tímamót í mótttöku og meðferð áfengissjúkra á Íslandi. Sjúkrahúsið var hannað frá upphafi fyrir þá starfsemi sem þar átti að fara fram, afeitrun, greining og byrjandi meðferð við bestu mögulegar aðstæður. Þjóðin hafði sameinað krafta sína og lagt þessu góða verkefni lið að byggja yfir starfsemi SÁÁ. Fram til ársins 1999 þjónaði húsið tilgangi sínum og þúsundir Íslendinga byrjuðu nýtt líf á Vogi.
Breytingar á neyslu sjúklinganna og aldurssamsetning hópsins ollu því að nauðsynlegt var að endurhanna hluta hússins og byggja við álmu fyrir þá sem yngstir voru. Samfélagslegar breytingar og kröfur um aðbúnað sjúklinga ásamt því að aðstaða starfsmanna var löngu úr sér gengin. Framkvæmdastjórn samtakanna var þetta vel ljóst og því var ráðist í endurbætur og viðbyggingu við sjúkrahúsið Vog og var því verki lokið árið 2000. Það ár opnaði unglingadeild Vogs ásamt nýrri álmu sem hýsir skóla SÁÁ fyrir heilbrigðisstarfsmenn og hluti starfsmanna fékk aðstöðu þar. Fólk sem skildi þörfina á bættu húsnæði lagði þessu góða málefni lið og aftur voru samtökin komin með starfsaðstöðu sem var nútímaleg og hentaði því sem verið var að gera þá.
Frá þeim tíma sem liðinn er frá endurbótunum á Vogi árið 2000 hefur starfsemin tekið miklum breytingum. SÁÁ tekur þátt í alþjóðlegum rannsóknum sem útheimtir bæði starfsfólk og aðstöðu. Félagslegur vandi þeirra sem koma í meðferð vex og því hefur verið bætt félagsráðgjafa í starfsmannahópinn. Hluti sjúklinganna verður sífellt veikari og þurfa þess vegna meira næði og meiri ummönnun í afeitrun. Viðhaldsmeðferð er stunduð á Vogi og er hún eitt mesta framfaraspor sem orðið hefur í lækningum ópíumfíkla sem nánast voru vonlausar áður. Tugir einstaklinga eru í dag í bata og í framför.
Samlegðaráhrif alls þessa eru þau að enn og aftur þurfum við að bregðast við og aðlaga húsin okkar að breyttum veruleika. Framkvæmir eru hafnar á viðbyggingu sem mun stórbæta aðstöðu vaktarinnar á Vogi. Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar munu fá aukið rými og stórbætta aðstöðu til að sinna mikilvægum störfum sínum ásamt því sem nýja álman mun hýsa veikust sjúklingana sem þurfa meiri ummönnun.
Það er því bjart yfir starfssemi SÁÁ þó skorið hafi verið niður til starfsseminnar undanfarin ár. Það ber fyrst og fremst að þakka velvilja og hlýhug þjóðarinnar sem enn og aftur birtist í ríkulegum framlögum til þessa nýja verkefnis SÁÁ. Áfram Vogur og takk Íslendingar fyrir að sýna SÁÁ og Vogi í verki hvers þið metið starfsemina.
Höfundur er dagskrárstjóri hjá SÁÁ og hefur starfað sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi í 27 ár
