Þrír íslenskir áfengis- og vímuefnaráðgjafar í viðbót með NCAC-réttindi

Þann 10. desember síðastiðinn luku þau Hulda Eggertsdóttir, Karl S. Gunnarsson og Páll Geir Bjarnason prófum NAADAC með viðunandi árangri.

 Þann 10. desember síðastiðinn luku þau Hulda Eggertsdóttir, Karl S. Gunnarsson og Páll Geir Bjarnason prófum NAADAC með viðunandi árangri og munu þau fá skírteini sín afhent formlega á næstu dögum. Þau þrjú hafa starfað hjá SÁÁ síðan 2006-7 og höfðu öll lokið ráðgjafanámi og hlotið réttindi sem áfengis- og vímuefnaráðgjafar frá Landlæknisembættinu.

Þetta er ekki auðvelt próf og hefur FÁR hafnað öllum tilboðum NAADAC um tilslakanir og sett stefnuna á það besta sem við þekkjum í dag. Prófin fara fram á ensku, þau eru undir óháðu eftirliti PTC sem sérhæfir sig í prófunum fyrir ýmis fagfélög. Það hefur sýnt sig að árangur okkar á Íslandi er ekki lakari en þeirra sem taka prófið á sínu móðurmáli sem segir okkur mest um gæði menntunar áfengis- og vímuefnaráðgjafa.

23. janúar árið 2004 útskrifuðust 4 ráðgjafar með NCAC-viðurkenningu NAADAC og síðan þá hafa fjórtán ráðgjafar bæst í hópinn. Þetta próf er viðurkenning á færni og þekkingu þessara ráðgjafa og vottun um að þeir standist ströngustu faglegu kröfur sem gerðar eru í heiminum til áfengis- og vímuefnarágjafa. Viðurkenningin felst í því að ráðgjafinn geri grein fyrir menntun sinni í faginu og vilja sínum til endurmenntunar, einnig að hann gangist undir með undirskrift siðareglur þær sem settar eru af NAADAC og FÁR. Að lokum þarf ráðgjafinn að standast próf sem inniheldur 250 spurningar um lyfjafræði, siðfræði, verkfærni og þekkingargrunn áfengis- og vímuefnaráðgjafar. Til að standast prófið þarf að svara yfir 170 spurningum réttum. Margir hafa lagt mikið á sig og gengist undir prófið en ekki náð tilætluðum árangri og segir það mest um einbeittan vilja þeirra að flestir hafa þá lagt á sig enn meiri vinnu og tekið prófin aftur og staðist þau.

Afraksturinn er að 18 ráðgjafar sem hafa hlotið menntun sína og þjálfun hjá SÁÁ hafa í dag útskrifast sem NCAC ráðgjafar.

Stjórn FÁR óskar þremenningunum innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur og verður haldið upp á áfangann við fyrsta tækifæri.

Leave a Comment

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *