Laugardaginn 5. desember verður næsti starfsdagur FÁR.
Þar verður fræðsla og umræður um spilafíkn. Að venju verða flutt erindi, GA samtökin kynnt og umræður.
Dagskrá:
10:00 Gísli Stefánsson, sjúkdómurinn, þróun og birtingarmynd
Kynning á GA
Umræður
12:00 Léttur hádegisverður
12:45 Ásgrímur Jörundsson, bati frá spilafíkn
Umræður og samantekt
15:00 Dagskrárlok
Starfsdagurinn er í umsjón Sigurðar Guðmundssonar og Ómars Þórs Ágústssonar
Stjórn FÁR.